Með því að nýta þessa þjónustu má jafnframt bæta lausafjárstöðu, lækka fjármagnskostnað og losna við þann kostnað sem fylgir utanumhaldi viðskiptakrafna.
Við eyðum óvissunni með því að kaupa kröfurnar strax við útgáfu eða þegar þér hentar. Þú færð kröfurnar greiddar út og veist nákvæmlega hvenær og hvernig ógreiddar kröfur skila sér.
Þú veist nákvæmlega hversu mikið er útistandandi á hverjum tíma og hvenær það verður greitt. Afföllin við kröfukaupin eru ákveðin fyrirfram og kostnaðurinn því ljós frá upphafi. Peningarnir skila sér á fyrirfram ákveðnum degi og með góðu skipulagi ætti að vera hægt að forðast eða draga úr fjármagnskostnaði s.s . af dráttarvöxtum, innheimtukostnað og yfirdrætti.
Með því að selja kröfurnar geturðu fengið þær greiddar þegar þér hentar og losnað við umstangið af innheimtu og utanumhaldi ógreiddra krafna.
Við sölu viðskiptakrafna flyst áhættan af því að greiðandi kröfunnar verði gjaldþrota, eða geti ekki vegna fjárhagserfiðleika sinna ekki staðið í skilum, yfir á kaupanda kröfunnar.
Ákveðið hefur verið að sameina þjónustu Faktoríu og Motus. Framvegis verður Faktoría því rekin undir nafni Motus, en Faktoría hefur verið systurfélag Motus frá árinu 2019. Sameiningin er liður í yfirstandandi þróun á þjónustuframboði Motus sem nær nú yfir allt sem snýr að kröfustýringu. Áhersla félagsins er sem fyrr á skjótt og öruggt fjárflæði viðskiptavina hvort sem það snýr að innheimtu, fjármögnun krafna eða kaupum á eldri kröfum. Sjá meira um kröfufjármögnun
Á þessari síðu eru notaðar vafrakökur í þeim tilgangi að bæta upplifun notenda og halda utan um og mæla frammistöðu vefsins og umferð um hann, svo sem tölfræðilegar upplýsingar um fjölda notenda og hegðun þeirra á honum.
Flestir vafrar heimila notkun á vefkökum sjálfkrafa, en notendur geta sjálfir afvirkjað þann möguleika.